148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[14:34]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér áðan ræddi hv. þm. Brynjar Níelsson um ábyrgð. Mig langar aðeins að ræða um ábyrgð þeirra aðila sem hér koma að málum. Við tölum um Samband íslenskra sveitarfélaga, dómsmálaráðuneytið. Þau bera ábyrgð á því að fólkið í þessu landi geti tekið þátt í hinu lýðræðislega ferli. Þar liggur ábyrgðin. 16 ára börn geta borgað skatta. Mér finnst skrýtið að heyra fulltrúa Sjálfstæðisflokksins mæla fyrir því að fólk sem greiðir skatta fái ekki að hafa áhrif á hvernig þeim sköttum er varið því að hvergi hef ég séð meiri áherslu á það en akkúrat hjá þeim annars … flokki. [Hlátur í þingsal.]

Mér finnst þetta svolítið skrýtið. Ég legg til að þær stofnanir sem sjá um að framfylgja lýðræðinu taki ábyrgð á því og kippi þessu í liðinn. Þær geta það alveg og ættu ekkert að vera að kveinka sér undan því að þurfa að bæta hið lýðræðislega ferli á Íslandi.