148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[14:35]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér hefur nú margt gott verið sagt. Undarlegust þóttu mér þó ummæli Ingu Sæland um að láta blessuð börnin í friði. Mér þætti vænt um að vita og að það yrði upplýst af hálfu flokks hennar hvort þau láti börnin í friði. Mega börn vera í flokknum hennar Ingu? Er aldurstakmarkið 18 ár í flokkinn eða lætur hún börnin ekki í friði?

Ég held að flestöll sjónarmið séu komin fram. Ég vildi taka tvennt fram. Varðandi utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem hefst innan skamms: Við búum almennt og alltaf við það að þegar hún hefst hefur enginn hugmynd um hvaða flokkar eða fólk er yfirleitt í framboði til viðkomandi kosninga. Það getur nú varla verið sérstök ástæða til að ungt fólk geti ekki kosið. Ég held að það ráði jafn vel við það undarlega verkefni og við sem eldri erum. Varðandi hvort þetta eru meiri háttar eða minni háttar breytingar þá eru þetta svo sannarlega ekki meiri háttar breytingar (Forseti hringir.) á kosningakerfinu. Það er ekkert verið að hrófla við kosningakerfinu sjálfu, nákvæmlega ekki neitt.