kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Ég tel að við eigum að treysta ungu fólki. Ég hefði alveg treyst mér til að kjósa 14 ára, en ég var kannski bráðþroska. En ég held að unga fólkið í dag sé enn þá meira inni í hlutunum en ég var þegar ég var 16 ára, og fylgist enn betur með hvað er að gerast í nærumhverfi þess. Það segir sig bara sjálft.
Við eigum að þora að treysta þessu unga fólki til að ganga að kjörborðinu. Við látum það borga skatta, leyfum því að ganga í flokkana eða hreyfingarnar okkar 16 ára. Viljum við hafa það eins og hv. þm. Brynjar Níelsson lýsti, að þetta unga fólk sé í flokkunum og við séum með eitthvert seiðaeldi fyrir ungt fólk og tökum það svo út eftir tvö ár og þá megi það kjósa? Nei, ég held að það eigi bara að treysta þessu unga fólki. Nú er að hrökkva eða stökkva. Við eigum að hafa kjark núna til að hleypa þessu máli í gegn og leyfa ungu fólki að kjósa nú í vor. Það má annars kjósa (Forseti hringir.) eftir tvö ár. Af hverju ekki núna?