148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[14:53]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er athyglinnar virði að heyra að ákveðnir þingmenn koma í pontu Alþingis til að reyna að — ja, sennilega af því að ég var búin að gleyma hvernig reglur hjá Flokki fólksins eru hvað varðar 16 ára inngönguskilyrði í flokkinn. Það er ekki það sama að taka þátt í stjórnmálastarfi og að ganga í kjörklefann. Það er ekki það sama að fá að hafa sjálfstæðan vilja og skoðanir í þá átt hvort maður kærir sig yfir höfuð um að taka þátt í stjórnmálastarfi eða eiga ömmustrák sem er að verða 17 ára og segir: Amma, hvenær er ég orðinn nógu gamall til að fara og kjósa þig? Ekki það að hann hafi hugmynd um hvað ég er að gera hérna yfir höfuð. Þannig að ég segi einfaldlega þetta: Það er algjört lágmark að ungmenni fái að velja sjálf hvort þau fara inn á þá línu að velja sér einhvern pólitískan vettvang eða hvort þeim er þröngvað út í það sem ég tel ekki rétt á þessu stigi og ég vil algjörlega að börnin fái að njóta vafans. [Háreysti í þingsal.]