kosningar til sveitarstjórna.
Herra forseti. Ég hef ekki tök á því að svara öllu sem fram hefur komið í þessari umræðu, því að þetta er eiginlega umræða frekar en atkvæðaskýringar.
(Forseti (SJS): Þar er forseti sammála.)
Ég treysti því að við höfum nægan tíma í 3. umr. til að ræða málið betur þannig að menn geti haft tækifæri til að skiptast á skoðunum um þetta frekar.
Það er einn punktur sem mér finnst ástæða til að vekja athygli á sem er áhugaverður, sem kom fram í umræðunni í þinginu í gær, hann er sá að Noregur eitt nágrannalanda okkar hefur tekið upp þá reglu að hafa kosningarrétt til sveitarstjórna 16 ár. Það eru til dæmi annars staðar í Evrópu, fá reyndar, um 16 ára kosningarrétt en Noregur gerði þessa tilraun með sveitarstjórnir. Það er sammerkt þeim sem um það hafa fjallað að ekki hafi gengið vel að innleiða þessa breytingu. Og hver var ástæðan? Jú, það var ekki nægur tími til að undirbúa. Undirbúningurinn var ófullkominn. (Forseti hringir.) Við ætlum hér að taka afstöðu til þessa máls viku áður en utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst.