148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[15:02]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég hef ekki tekið til máls um þetta frumvarp fyrr en nú. Þó að hér sé um að ræða málefni sem er allrar athygli og mikillar íhugunar vert ætla ég að leyfa mér að segja að mér virðist gæta nokkurs fljótræðisbragðs og ákveðinnar fljótaskriftar á hlutunum, a.m.k. miðað við málatilbúnað ýmissa hér. Það er vissulega ábyrgðarhluti að hunsa viðvörunarorð dómsmálaráðuneytis og fleiri opinberra aðila. Ég ætla að leyfa mér að minna á hið forna spakmæli, af því að það er það eina sem ég kann á latínu, það er: „Festina lente.“ Flýttu þér hægt.