atkvæðagreiðsla um breytingartillögur.
Virðulegi forseti. Ég hafði sömu væntingar og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson um að sú breytingartillaga sem gengi lengra yrði tekin á undan. Ég er vanur því að breytingartillögur séu teknar fyrir þannig. Mér finnst það í sjálfu sér ekki stórmál en þetta kom mér á óvart og mér fannst það óþægilegt vegna þess einmitt að ég fylgist mjög vel með á vefnum þegar við erum að greiða atkvæði. Ég hlusta þegar forseti talar um tölurnar og nefnir þingskjölin til þess að fylgjast mjög vel með því sem er í gangi. Ég tek eftir svona hlutum og þeir rugla mig vegna þess að ég reyni að fylgjast með.
Það er þess vegna sem mér finnst ekki við hæfi, með fullri virðingu fyrir virðulegum forseta, að hann sendi einhverja pillu á þingmenn um að hann geri ráð fyrir því að þeir viti hvað þeir séu að greiða atkvæði um. Það þarf að fylgjast með því hérna og það getur verið erfitt. Þeir þingmenn sem leggja mikinn metnað í það vita mætavel að þetta snýst ekkert um það. Þetta var eðlileg spurning hjá hv. þingmanni. Það kemur mér á óvart að regluverkið sé svona. Ég ætla samt ekkert að deila við regluverkið. Ég finn ekkert í þingsköpum sem gerir það sem ég teldi eðlilegt, að sú sem gangi lengra væri tekin fyrr fyrir, en mig langaði að gera athugasemd (Forseti hringir.) við þetta orðalag virðulegs forseta. Hann ber sjálfur líka ábyrgð á því að fólk í þessum sal viti hvað er í gangi.