148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

393. mál
[16:02]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Þetta frumvarp er flutt óbreytt og hitt frumvarpið, sem kemur hér á eftir, eins og hv. þingmaður kemur réttilega inn á, hefur tekið breytingum og hefur verið víkkað út og nær til fleiri þátta. Þar erum við í raun að stíga lengra skref en gert var síðast þegar málið var lagt fram. Ástæðan fyrir því að það er ekki gert í þessu máli er meðal annars sú að ég taldi rétt að við stigjum lengra skref varðandi hitt frumvarpið. Varðandi þetta frumvarp erum við að hefja vinnu, m.a. með Samtökunum '78, við að útfæra og taka til fleiri þátta sem þarf að grípa inn í þannig að málið nái til víðtækari hóps.

Ég taldi að þessu sinni, og að höfðu samráði við ríkisstjórnina, að þetta væri skynsamlegt fyrsta skref í þessu efni. Ég segi hins vegar og segi það alveg hreint og skýrt að ég hvet nefndina til að skoða þetta sérstaklega. Sé vilji til þess að frumvarpið nái til fleiri þátta þá er ekkert því til fyrirstöðu í sjálfu sér. En það er rétt að koma því að að það hefur komið fram í andsvörum mínum við fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráðherra að skiptar skoðanir eru hér í þingsal. Ég tala fyrir minn munn í því efni. Ég vil sjá þessi mál ganga fram og sjá þau ná til eins breiðs hóps og mögulegt er. Ég hvet nefndina til að skoða þetta sérstaklega. En við töldum rétt að þessu sinni að stíga þetta skref.