jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Frú forseti. Ég þakka ráðherra svarið. Mig langar að spyrja aðeins nánar — í ljósi þess sem hæstv. ráðherra segir hér um að hann hvetji nefndina til að taka þetta til skoðunar — hvort ráðuneytið lýsi sig reiðubúið til að vera okkur innan handar í nefndinni með orðalag á þessu. Ég minntist á það við meðferð málsins síðast að mér finnst að það eigi að ná yfir þessa stærri hópa og fékk þá þau skilaboð að þetta væri skynsamlegt fyrsta skref. Mér finnst hins vegar einmitt allt of lengi beðið eftir réttlæti fyrri stærri hópa. Mér finnst að sjálfsögðu mjög jákvætt að verið sé að vinna með Samtökunum '78 í að víkka þetta út að þeim anga þjóðlífsins. Hins vegar má geta þess að það tekur væntanlega ekki yfir fötlun og önnur slík einkenni, aðrar slíkar mismunabreytur, sem hafa víðtæk áhrif á líf fólks og réttindi þess hér í þessu sambandi. Ég minni á að við erum búin að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og það felur í sér okkar skuldbindingu að hafa bann við mismunun á grundvelli fötlunar inni í okkar almennu lögum. Ég tel að það liggi talsvert á því (Forseti hringir.) að við förum að banna mismunun gagnvart fötluðum líka.
Ég spyr ráðherra: Stendur til (Forseti hringir.) að hjálpa okkur í nefndinni og verður Öryrkjabandalagið með í ráðum í næstu lögum? Eða getum við kannski bara drifið þetta af núna?