148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

393. mál
[16:05]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég segi aftur það sem ég sagði áðan að ákveðið var að stíga þetta skref í þessari lotu rétt eins og gert var þegar frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi. Auðvitað er löggjafarvaldinu það í sjálfsvald sett hvaða breytingar það gerir. Nú kem ég með þetta frumvarp, legg það fram hér á þingi. Þinginu er í sjálfsvald sett hvaða breytingar það gerir á málinu í meðförum sínum, bæði hér í þingsal og í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég segi: Það er ekkert mál að leita til ráðuneytisins varðandi aðstoð og upplýsingar, hverjar svo sem þær eru, hvort sem þær snúa að þessum þætti málsins eða öðrum. Ég heiti því að starfsfólk ráðuneytisins verður boðið og búið að aðstoða nefndina í þeim efnum. Ég ítreka þó mikilvægi þess að það er þingið sem heldur á málinu eftir að ráðherra mælir fyrir því en ekki framkvæmdarvaldið. En það er ekkert mál að veita alla þá aðstoð og sérfræðiþekkingu og annað sem er til staðar í ráðuneytinu við vinnslu málsins.