jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Virðulegi forseti. Þar sem ég styð þetta mál heils hugar þá hef ég ekki hug á því að tefja fyrir framgöngu þess með mjög löngum eða ítarlegum ræðuhöldum. Mig langaði þó að koma hér upp í ljósi þeirra orðaskipta sem áttu sér stað í andsvörum og greina ráðherranum frá þeirri meginlínu minni að mér þykir það í góðu lagi ef þetta mál nær í gegn svo gott sem óbreytt í fyrstu atrennu. Ég veit að ekki eru allir sammála um það, en hvað mig varðar þá finnst mér það verðmætara að til verði heildstæð löggjöf um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna sem fyrst heldur en að sú löggjöf sem birtist verði í þeirri mynd sem við myndum vilja sjá hana til lengdar. Það var það sem ég lagði áherslu á á síðasta kjörtímabili og mat sem svo að það yki líkur á því að málið næði fram að ganga ef við myndum taka það svo til óbreytt út úr nefnd. Það mat mitt reyndist ekki rétt, því miður, þrátt fyrir það náði málið ekki fram að ganga. En svo að hæstv. ráðherra skilji afstöðu mína rétt þá finnst mér það ekki endilega nauðsynlegt og forsenda fyrir stuðningi mínum við málið að við bætist fleiri breytur.
Ég hef verið að skoða dálítið íslenska löggjöf í gegnum tíðina í gegnum þau gleraugu hvernig hún kemur út í samanburði við löggjöf annarra ríkja þegar kemur að réttindavernd og réttindaöflun fólks af erlendum uppruna. Í öllum mælaborðum og samanburði þá skerum við okkur úr hvað eitt varðar, það er einmitt skortur á löggjöf um mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna. Mörg þau ríki sem hafa slíka löggjöf ganga t.d. lengra með að tilgreina trúarbrögð í sambærilegri löggjöf eða jafnvel ríkisfang eða ríkisfangsleysi. Það er ekki síður rökrétt skref myndi ég halda. En eins og ég segi er ákveðin hætta á því, í ljósi þess hve málið er margsnúið og hve margir hópar geta komið að, að með hverjum hópi eða breytu sem bætist við aukist líkur á því að næsta hóp þar á eftir finnist fram hjá sér gengið. Því finnst mér ákveðinn rökréttur heildarbragur á því að í fyrstu umferð tökum við tillit til þeirra breytna sem snúa að þjóðerni, uppruna, kynþætti, hlutum sem lúta mjög beint að því að gera Ísland að fjölmenningarvænu samfélagi.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta meira. Eins og ég segi þá styð ég að málið nái fram að ganga svo til óbreytt í fyrstu atrennu, en mun að sjálfsögðu ekki leggjast gegn því þó að einhver telji að það sé auðsótt að fjölga þeim mismunabreytum sem þar eru upptaldar. En það er ekki forsenda fyrir mínum stuðningi.