148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

jöfn meðferð á vinnumarkaði.

394. mál
[16:47]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vildi svo gjarnan búa í samfélagi þar sem ekki þyrfti að setja sérstök lög til þess að allir þjóðfélagshópar sætu við sama borð í samfélaginu. En við erum því miður ekki með þannig samfélag. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að setja lög sem eru til þess fallin að jafna meðferð einstaklinga sem tilheyra minnihlutahópum eða jaðarsettum hópum. Vonandi komumst við á þann stað í framtíðinni að slík lög verði óþörf, en það er þörf á þeim núna. Þess vegna fagna ég því að þetta frumvarp sé komið fram sem og það frumvarp sem hæstv. ráðherra mælti fyrir áðan. Ég held að þau skipti máli, en það kann vel að vera að hægt sé að bæta þau enn frekar í störfum þingsins og störfum hv. þingnefnda.

Það er í rauninni tvennt sem mig langar að koma inn á við 1. umr., sem ég held að sé mikilvægt að verði skoðað sérstaklega í störfum hv. þingnefndar, það er annars vegar það sem fjallað er um í 3. gr., orðskýringar, 8. lið, þar sem er skilgreining á fötlun. Það eru önnur þingmál sem er verið að vinna að á þessu löggjafarþingi, annars vegar frumvarp til laga um fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir þar sem NPA-löggjöfin er innan borðs og hins vegar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nú hef ég aðeins fylgst með störfum hv. velferðarnefndar hvað varðar þau frumvörp og fylgst með umræðum um skilgreiningu á fötlunarhugtakinu þar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þingið passi að gæta samræmis í þeim lögum sem eru til umfjöllunar á þessu þingi og auðvitað bara í lögum almennt. Þetta er eitthvað sem í meðferð málsins þarf að hafa puttann á og passa að það sé samræmi á milli ólíkra laga.

Því tengt, þ.e. skilgreiningunni á fötlun, þá tel ég að það þurfi að skoða það mjög vel þegar kemur að vinnumarkaðnum og setja í samhengi við það að fötlun er aðstæðubundin. Hæstv. ráðherra kom inn á það í framsögu sinni að líkamlegt atgervi fólks gæti haft áhrif á það hvort það gæti gegnt tilteknum störfum og nefndi sérstaklega starf lögreglumanna og slökkviliðsmanna. Þessu er ég alveg sammála, en fötlun hins vegar er aðstæðubundin og það eru störf innan þessara stofnana sem vel er hægt að gegna þrátt fyrir að líkamlegt atgervi sé kannski ekki mjög sterkt eða mikið því þar eru ýmis skrifstofustörf sem einstaklingur sem notar hjólastól til að mynda getur sinnt mjög vel þrátt fyrir fötlun sína.

Þetta er eitt af því sem ég tel að þurfi að hafa augað á og skoða vel í gegnum greinarnar í þessu lagafrumvarpi. Það má kannski segja að þetta séu frekar núansar á því hvernig málið gæti komið til með að líta út eftir að Alþingi hefur lokið umfjöllun sinni og gæti jafnvel verið til þess fallið að bæta málið og tryggja enn frekar að einstaklingar fái jafna meðferð á vinnumarkaði þrátt fyrir stöðu sína í samfélaginu að öðru leyti.