148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[16:52]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Við ræðum hér eitt mikilvægasta mál hverrar ríkisstjórnar, fjármálastefnu til fimm ára. Hér hafa talað fyrir hönd Samfylkingarinnar hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson og hv. þm. Oddný Harðardóttir, fulltrúar okkar í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Þau hafa farið vel yfir stefnuna og bent á að það er nánast enginn hagsmunaaðili sáttur og um það bil 80 athugasemdir. Fjármálastefnan er kölluð óraunsæ, ótrúverðug, óskýr og ógn við stöðugleika. Óskýr, segir Alþýðusamband Íslands, þó að það sé eitt af meginmarkmiðum með fjármálastefnunni.

Þetta er plagg sem stjórnvöld þurfa að fylgja eftir, það er ekki nema einhverjir hræðilegir atburðir gerist að mönnum leyfist að bregða frá henni. Þess vegna skiptir þetta plagg miklu máli.

En það er ekki hægt að tala um fjármálastefnu án þess að spegla hana við stjórnarsáttmálann og brýnustu verkefnin sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þegar skoðuð er eftirgjöf tekna og vilji, eða getuleysi, til að afla nýrra tekna blasir við að ekki verður hægt að takast á við þau brýnu verkefni sem a.m.k. Samfylkingin leggur áherslu á og önnur sem við höfum beinlínis skuldbundið okkur til, bæði innan lands og á alþjóðavettvangi. En þegar fjármálastefnan og stjórnarsáttmálinn eru lögð saman finnst mér birtast afar dökk mynd, mynd af hægri stefnunni sem Sjálfstæðisflokkurinn í raun rekur. Það fer að verða rannsóknarefni hvernig sá flokkur, sem er með um þriðjung atkvæða og stærstur í landinu, nær ávallt að tæla nýja flokka til lags við sig og láta þá kokgleypa stefnu sína. Fyrir ári voru það Björt framtíð og Viðreisn, nú eru það Framsókn og Vinstri græn sem ganga í björg og birtast aftur sem hálfgerðir umskiptingar. Afstaða Framsóknarflokksins kemur mér þó minna á óvart. Það er full ástæða til að hrósa Sjálfstæðisflokknum fyrir árangurinn. Hann hlýtur að vera löngu eftirtektarverður.

Öll áhersla er á skattalækkanir. Það mun koma niður á efnahagslegum stöðugleika. Og félagslegi stöðugleikinn, sem bæði við í Samfylkingunni og Vinstri græn töluðum um fyrir kosningar, er einfaldlega í órafjarlægð. Við þekkjum afleiðingarnar ágætlega, m.a. þær sem koma fram í ábendingum frá hagsmunaaðilum: Mögulega hærri vextir og verðbólga, og launafólk og þeir sem fátækastir eru munu enn einu sinni þurfa að sitja eftir. Og þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þó boðað, t.d. í skattamálum, miða fyrst og fremst að því að bæta lífsafkomu þess fólks sem mestar hefur tekjurnar. Það mun óhjákvæmilega kalla á óróleika á vinnumarkaði. Við erum í sjálfu sér farin að finna nasaþefinn af því.

Ég hef dálæti á Halldóri Laxness, eins og mörg okkar, og hef örugglega tvisvar, þrisvar áður lesið hér tilvitnun í Brekkukotsannál sem lýsir ástandinu á Íslandi fyrir 110–120 árum, með leyfi forseta:

„Í þann mund sem ég var að verða til þá var þar í kotinu mikil örtröð af því fólki sem nú á dögum heitir flóttamenn. Það er að flýja land. Það leggur af stað með tárum úr heimkynnum sínum og ættbyggð af því að svo illa er að því búið heimafyrir að börn þess ná ekki þroska heldur deyja.“

Í þessari stuttu tilvitnun kristallast tvennt: Annars vegar hvað aðstæður okkar Íslendinga hafa vissulega tekið miklum stakkaskiptum. Tekjujöfnuður er með því mesta í heiminum, jafnrétti kynjanna sömuleiðis og aðbúnaður almennings er allur annar. En þetta þýðir þó ekki að nóg sé að gert og að ekki sé hægt að breyta hlutunum til hins betra. Við þurfum að fara að ná utan um þau sem hafa sannarlega orðið eftir. Hins vegar getur þessi tilvitnun líka snúist um tvo hópa sem eru að verða fórnarlömb átaka og hörmunga og fátæktar annars staðar. Við þurfum líka að sýna miklu meiri dug þegar kemur að því fólki. Það er ekki nóg að hrópa bara og hrópa að maður vilji. Ekki nóg að tala um það fyrir kosningar. Á endanum eru það verkin sem maður verður dæmdur af, og mér finnst í rauninni upphafið að þessu ríkisstjórnarsamstarfi ekki lofa neitt sérstaklega góðu fyrir hönd okkar félagshyggjufólks sem höfum talað fyrir þessu. Þó að lífskjör séu almennt góð hérna er mikið ógert og þá skiptir höfuðmáli hvaða flokkar stjórna. Við lifum hvorki í meðaltali Hagstofunnar né heldur í súluritum fjármálaráðuneytisins. Hver og einn sem ekki getur framfleytt sér skiptir máli í samfélaginu. Allur fókusinn á að vera á þann hóp.

Við vitum, sjáum og heyrum að mikill fjöldi venjulegs launafólks, aldraðra, öryrkja, nær ekki endum saman, þarf að neita sér um læknisþjónustu eða annað sem telst til sjálfsagðra hluta í dag. Þá er eignastaða ungs fólks mjög slæm. Margar fjölskyldur hrekjast um á ótryggum, allt of dýrum leigumarkaði sem hefur slæmar afleiðingar fyrir bæði fjölskyldulífið og ekki síst börnin. Ég held að við ættum að fara að temja okkur að allt sem við gerum verðum við að skoða út frá því hvernig það kemur út gagnvart börnunum.

Fátæktin er þjóðarskömm. Það ætti að vera fyrsta forgangsverkefni stjórnvalda að bæta kjör þessara hópa. Þess vegna hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með pólitíska nágranna mína í Vinstri grænum. Það er ekkert leyndarmál að í mjög stórum málaflokkum deili ég sýn með þeim, einkum þegar kemur að velferðarkerfinu og hvernig eigi að byggja það upp, hvernig skattkerfi og hvernig fjármálastefnu eigi að reka. Mér finnst þess ekki sjá mikinn stað hjá þessari ríkisstjórn. Það er einfaldlega ekkert af þessu á dagskrá hennar. Og hún ætlar þvert á móti að lækka skatta, skilst mér, á toppi hagsveiflunnar, á þann veg sem ég nefndi áðan, sem nýtist hinum efnamestu best.

Í umsögnum við fjármálastefnuna er víða bent á hversu hættulegt þetta getuleysi ríkisstjórnarinnar sé til að afla tekna er þegar við erum á þessum stað. Samt er ekkert hlustað á athugasemdir helstu sérfræðinga landsins í efnahagsmálum og heldur lítið er hlustað á kröfur launafólks um betri lífskjör. Ég er sannfærður um að leiðin að þeim er ekki eingöngu hömlulausar launahækkanir, hvað maður fær í veskið, heldur líka að tryggja félagslegan stöðugleika sem gerir okkur kleift að lifa frá vöggu til grafar án þess að hafa sífelldar áhyggjur af því að eitthvert minnsta áfall komi upp. Það hafa verkalýðshreyfingin, stéttarfélögin og aðrir hagsmunaaðilar á vinnumarkaði, líka atvinnurekendur, bent á að sé verkefni stjórnvalda.

Eins og ég nefndi áðan höfum við ekki bara skyldur gagnvart því fólki sem býr við lökustu kjörin á Íslandi. Við höfum nefnilega líka miklum skyldum að gegna gagnvart umheiminum, bæði samningsbundnum en ekki síður siðferðislegum. Við höfum sjálf fyrir ekki svo löngu síðan, 120 árum, þurft að upplifa að þurfa að flýja ömurlegar aðstæður, við vorum í þá daga auðvitað ekkert annað en efnahagslegir flóttamenn til Vesturheims. Við ættum að muna það og leggja miklu meira á okkur við að taka á móti flóttamönnum og ekki síður veita mjög myndarlega þróunaraðstoð og meiri en gert er í dag, og reyna frekar að nálgast þau markmið sem sett voru fram í þingsályktunartillögu fyrir nokkrum árum.

Mér sýnist miðað við allt og allt að það sé lítið svigrúm til þess, ef að líkum lætur. Það voru alla vega ekki nein fyrirheit gefin um það í síðustu fjárlögum og ekkert svigrúm virðist skapað á miðju lengsta hagvaxtarskeiði síðari tíma. Í dag ræddum við líka dapurlegar fréttir um reglugerð sem dómsmálaráðherra skrifaði undir sem takmarkar enn rétt fólks sem er í mikilli neyð. Þó að það tengist kannski ekki beint fjármálastefnunni er þetta allt samhangandi. Það er hörmulegt að við skulum þurfa að upplifa þetta.

Ég er eiginlega hissa á því að forsætisráðherra skuli ekki vera búin að senda samráðherra sínum tóninn út af því. Annað eins hefur nú verið gert af minna tilefni.

Frú forseti. Þá aðeins að ályktunum landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem hér hafa verið ræddar í óundirbúnum fyrirspurnum, störfum þingsins og gott ef ekki líka í fundarstjórn forseta. Hæstv. fjármálaráðherra var hissa á að við skyldum vera að ræða þær hér. Ég er það ekki. Þetta er stór, öflugur flokkur, 1.000–1.200 manna samkoma. Það mæla sig ekki margir íslenskir stjórnmálaflokkar við það. En síðast en ekki síst hefur hann, þrátt fyrir að vera bara með 25–30% fylgi síðustu árin, haft töglin og hagldirnar í öllum stjórnmálum, og jafnvel með sósíalista í forsæti virðist hann ráða öllu. Í þessum landsfundarályktunum sýnist okkur sem höfum skoðað þær að þar sé hvatt til þess að ráðist sé í blóðugan niðurskurð frekar en marglofaða innviðauppbyggingu. Á næstu sjö árum eigi að skera niður um 250–260 milljarða kr., 10% af landsframleiðslu. Það er nú ekkert smotterí. Þó svo að það hafi ekki birst með þeim hætti í fjárlögum, stjórnarsáttmála eða fjármálastefnu er maður býsna hræddur um að eitthvað muni hrikta í samstarfinu ef grundvallarhugmyndir flokkana um framtíðina eru jafn ólíkar og þeir eru.

Og hverjir myndu blæða ef menn færu þessa leið? Svarið liggur svo sem í stjórnarsáttmálanum. Þar er talað um að lækka neðra þrepið. Það mun hins vegar nýtast langmest okkur hér sem höfum há laun, en miklu síður og nánast ekkert þeim sem hafa lægstu launin. Og eins ályktunin um að verja eigi fjármagnseigendur fyrir verðbólgu með því að breyta reglum um hvernig fjármagnstekjuskattur er lagður á, það mun ekki gefa neinar tekjur í ríkissjóð, alla vega afar litlar. En það mun hins vegar gera þeim sem eiga fjármunina, eiga peningana, enn betri færi en áður á að maka krókinn og gera mikið úr fjármunum sínum. Þetta er m.a. ein af ástæðum þess að það er að togna á bilinu milli tekna og eigna þeirra lægst launuðu og þeirra hæst launuðu. Það munum við væntanlega sjá eftir helgi þegar hæstv. fjármálaráðherra birtir svar við fyrirspurn minni.

En þetta er í rauninni í litlu samræmi við það sem Vinstri græn töluðu um fyrir kosningar og nánast engu samræmi við áramótaræðu sem var að mörgu leyti glæsilega flutt. En innihaldið var langt frá því sem við sjáum hérna. Nú er reiptogið milli þessara tveggja flokka hafið. Munum við sjá Sjálfstæðisflokkinn ná að fylgja eftir ályktunum grasrótar sinnar? Eða munum við sjá Vinstri græn reyna að efna kosningaloforð sín? Eru þau búin að gefa þau alveg upp á bátinn? Svarið er í mínum huga býsna augljóst. Hér er það Sjálfstæðisflokkurinn sem ræður. Ég er í grundvallaratriðum ósammála stefnu þess flokks, en ég óttast að það verði niðurstaðan.

Þrátt fyrir að við séum búin að sjá gríðarlegar samfélagsbyltingar á síðustu 110–120 árum eru bara svo ótrúlega vondar aðstæður uppi hjá okkur og eru að versna. Þær eru algerlega í takti við þá þróun sem við höfum séð síðustu 15–20 ár í öllum heiminum. Eignastaða fólks er að verða svo ólík. 1% mannkyns á jafn mikið og afgangurinn, 99%. Á Íslandi er þetta ekki svona slæmt enn þá, sem betur fer. Hér eru það aðeins 5% Íslendinga sem eiga jafn miklar eignir og hin 95%. En þessi ójöfnuður er stöðugt að aukast. Auðurinn er að færast á færri og færri hendur. Við eigum að snúa þeirri þróun við. Við eigum ekki að styðja við hana. Í því ljósi get ég alveg tekið að mér að svara því sem hæstv. fjármálaráðherra beindi að hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni í andsvörum: Hvað með fjármagnstekjuskatt? Hvar viltu sjá hann? Ég vil sjá hann hækka meira, takk. Að minnsta kosti. Ég vil alla vega ekki sjá hækkun sem mun með breyttri reiknireglu kannski ekki leiða til neinna tekna. En að öðru leyti eigum við að gæta hófs og ég held að allir hér inni vilji verja lægstu tekjurnar og meðaltekjurnar. En ég gengst alveg við því að minn flokkur, og að ég hélt Vinstri græn, viljum ganga lengra í þá átt að afla tekna hjá þeim sem virkilega eru aflögufærir. Menn geta svo bara verið ósammála því en það er sú stefna sem við höfum viljað fylgja.

Ég er sjálfsagt búinn að segja það 20 sinnum núna en mér finnst ekkert benda til að núverandi ríkisstjórn ætli að ráðast gegn aukinni misskiptingu. Þess vegna leyfi ég mér að vitna í ályktun miðstjórnar ASÍ sem ályktaði í kjölfarið á fjárlögunum, með leyfi forseta:

„Í rannsókn hagdeildar ASÍ á þróun skattbyrði launafólks síðastliðin 20 ár kemur skýrt fram að skattbyrði launafólks hefur aukist og þeim mun meira eftir því sem tekjurnar eru lægri. Það eru því mikil vonbrigði að ekki sé brugðist við þessari þróun í fjárlagafrumvarpinu heldur þvert á móti haldið áfram á sömu braut með því að lækka útgjöld til barnabóta, vaxtabóta og húsnæðisbóta. Tekjuójöfnuður mun halda áfram að aukast þar sem dregið er enn frekar úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins.“

Það sem verra er, ríkisstjórnin skilar algerlega auðu þegar kemur að hinum félagslega stöðugleika, þeim verst settu, öldruðum, öryrkjum, ungum barnafjölskyldum. Þetta fólk er látið bíða áfram. Ég get ekki séð að þegar þetta kemur saman, fjárlögin, fjármálastefnan og stjórnarsáttmálinn, að neitt svigrúm verði til að laga það. Og ekki er staðið við margítrekuð loforð um að styrkja innviði og almannaþjónustu. Auðvitað bíð ég spenntur til 5. apríl samkvæmt nýjustu heimildum. Það getur verið að eitthvað bitastætt birtist í fjármálaáætluninni. Ég ætla rétt að vona það. En ég spái því að við munum sjá býsna mikla innspýtingu í einhvers konar innviðauppbyggingu, vegum og öðru, sem hægt er að taka, svona einskiptisaðgerðir sem hægt er að taka með arði úr bönkum og svoleiðis. En við munum sjá heilbrigðiskerfið og menntakerfið og bótakerfin okkar fá miklu minna en þörf hefði verið á.

Nú er ég að verða búinn með tímann. Ég vil nota síðustu tvær sekúndurnar til að spyrja hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur: Til hvers er eiginlega barist?