fjármálastefna 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar, þessa ræðu. Fyrst nefndi hv. þingmaður fjölmargar umsagnir sem komu fram um málið. Vissulega voru þær gagnrýnar. Ég get á engan hátt tekið undir að í þeim hafi falist endilega sá áfellisdómur sem hv. þingmaður kvað hér upp og vitnaði þá helst til minnihlutaálits fulltrúa Samfylkingarinnar í hv. fjárlaganefnd. Flestir voru sammála því að stefnan byggi kannski helst til á fullbjartsýnni spá Hagstofunnar. Það eru tvísýnar horfur. Ég get tekið undir það. Þetta verður jafnvægislist, að skila jákvæðri afkomu eins og kemur fram í stefnunni og treysta hér félagslegan stöðugleika eins og áform eru um. Um það erum við hv. þingmaður sammála.
Hv. þingmaður kom inn á að skilað hefði verið auðu. Ég get ekki tekið undir það. Hér var verið að auka fjármuni í heilbrigðiskerfið á síðustu fjárlögum og áform um að gera betur þegar kemur að barnabótum og fæðingarorlofi. Það er því ýmislegt verið að gera í þessari stefnu.
Ég vil spyrja hv. þingmann sérstaklega þar sem honum er mjög umhugað um að bæta kjör hinna lægst launuðu, þeirra sem lökust hafa kjörin, það er jafnframt á stefnuskrá hæstv. ríkisstjórnar og fram kemur í stefnunni að það eigi að lækka tekjuskatt í neðra þrepi: Hvernig getur hv. þingmaður rökstutt að það komi ekki til með að nýtast þeim sem hafa lægri launin?