fjármálastefna 2018--2022.
Frú forseti. Jú, auðvitað kemur það til með að nýtast að einhverju leyti. En finnst hv. þingmanni það sanngjarnt að sá sem er með 300 þús. kr. á mánuði muni hugsanlega fá 4 þúsund kall aukalega á mánuði á meðan við tveir fáum 15 þúsund kall? Sem erum vel aflögufærir. Mér finnst það ekki. En í þessu birtist bara grundvallarmunur okkar á hvernig við lítum á samfélagið. Ef pitsan væri fjórum sinnum dýrari, ef hún væri tekjutengd væri þetta kannski allt í lagi, en hún er það ekki. Nauðþurftir eru það ekki. Þess vegna eru þær hlutfallslega mörgum sinnum dýrari fyrir þá sem eru fátækir og ná ekki endum saman.
Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að auðvitað sá þess stað í fjárlögum að ríkisstjórnin væri að bæta í heilbrigðiskerfið og menntakerfið. Þó nú væri. En það var á engan hátt nægilegt.
Það sem ég er að tala um er fyrst og fremst að við tökum okkur á þegar kemur að þeim allra veikustu í samfélögum okkar. Við erum með lélegt barnabótakerfi, lélegt vaxtabótakerfi, sem eru þó þau tvö kerfi sem hafa verið skilvirkust þegar kemur að tekjujöfnuði. Ríkisstjórnin er að gefa eftir tekjur frá síðasta framlagða fjárlagafrumvarpi um 20–30 milljarða. Meira að segja umhverfisverndarflokkurinn Vinstri græn sættu sig við að kolefnisgjöld lækkuðu, hækkuðu 50% minna en til stóð. Hefðum við kannski ekki alveg haft gott af að vera með þá aura núna til þess að ráðast í þessa hluti?