fjármálastefna 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Grundvallarmunur? Hv. þingmaður kom inn á bótakerfin. Ég er í grunninn sammála þegar kemur að barnabótakerfinu. Það getur nýst mjög vel. Við eigum að gera vel þar. En vaxtabótakerfið eins og það hefur verið byggt upp hefur sýnt sig vera mjög óskilvirkt. Þá vil ég spyrja hv. þingmann um skoðun hans á þessu vaxtabótakerfi sem hefur í raun og veru farið til þeirra sem hafa verið skuldsettastir en ekki endilega þeirra sem hafa lökustu kjörin. Hvaða breytingar sér hann fyrir sér í þeim efnum?
Og af því að það er hér í stefnunni, þar sem er lítið atvinnuleysi eru áform um að lækka tryggingagjald. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því?