148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[17:20]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að sá tímapunktur sé að koma að við getum hætt að tala um að við séum á toppi hagsveiflunnar. Það hefur kólnað hratt. Árið 2016 var hagvöxtur á Íslandi 7,4%, ef ég man rétt, sami og á Indlandi, sá mesti í heimi. En nú erum við komin á dálítið annan stað. Ég held við verðum að fara að tala um þann veruleika að þetta er að jafnast út hjá okkur, við erum að komast á annan stað en við höfum verið á allra síðustu árum.

Ég hef áhyggjur af því þegar við erum að fá umsagnir og skoða gögn um launahlutfall, hlutfall kostnaðar við laun, á Íslandi miðað við landsframleiðslu, þá er það 62%. Í Noregi er það 55% og almennt virðist það vera í kringum það yfir línuna. Í rekstri á Íslandi er það hlutfall sem fer í laun gríðarlega hátt. Þetta er hlutfall sem maður hefur töluverðar áhyggjur af.

Ef við ræðum fjárlögin núna síðast og fjármálastefnuna sem tengist þeim þá hefur aldrei í Íslandssögunni jafn mikið verið sett í velferðarmál á milli ára, heilbrigðisþjónustu og slíka þætti. Raunvöxtur í velferðarmálum var 13% í fjárlögunum fyrir 2018, 12% í heilbrigðisþjónustu og miklu var bætt í menntamálin. Þetta telur sjálfsagt um 70–80% sem bætt var inn í fjárlögum fyrir þessa málaflokka. Svo kvörtum við víða um samgöngumál og annað, fjárfestingar þar.

Raunvöxtur ríkisfjármála síðustu tvö ár hefur verið 8–8,5% bæði árin. Þetta er nánast fordæmalaust svo því sé haldið til haga.

Ég spyr hv. þingmann: Hvernig sér hann efnahagsstefnuna? Hverju á að breyta? Hvar á að afla skatttekna? Hvernig á takast á við þetta? Hverjar eru hugmyndir hv. þingmanns?