fjármálastefna 2018--2022.
Frú forseti. Á toppi hagsveiflunnar eða að fara að rúlla niður brekkuna, sem við þekkjum allt of vel, þessar gríðarlegu hæðir og lægðir. Hvað ætla menn að gera ef við förum mjög hratt niður í öldudalinn? Hvaða afgang ætla menn þá að nota? Hvað verður þá fyrst undir hnífnum? Það verður auðvitað velferðarkerfið. Þrátt fyrir allt er býsna góð hagsæld hér enn og hægt hefði verið að afla tekna. Það hefði að minnsta kosti verið hægt að sleppa því að gefa eftir þá 20–30 milljarða sem verið er að gera.
Við höfum talað um tekjur af auðlindum. Við höfum talað um umhverfisskatta. Við höfum talað um þrjú þrep í tekjuskattskerfinu. Við höfum talað um stóreignaskatt. Það er ekkert leyndarmál. En það versta sem þú gerir, og það birtist ágætlega í umsögnum, við þær aðstæður sem nú eru er hvorki að draga saman og sýna aðhald á þann hátt, sem er skiljanlegt vegna þess að þjóðarkrafa er uppi um innspýtingu í innviði, né að fara í útgjöld og afla tekna fyrir þeim. Það er eina leiðin. Það er stórhættulegt að ganga bara alltaf á afgang. Við vorum svo sem alveg sammála því að það mátti kannski aðeins minnka hann, um 6–7 milljarða eða eitthvað svoleiðis. Það var það sem fyrrverandi fjármálaráðherra talaði um.
Ég hef áhyggjur af því að ef við erum að húrra niður kúrfuna gætum við lent í spennitreyju, eins og menn tala um. Og hvar ætlar hv. þingmaður þá að skera niður?