148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[18:05]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði að ræða þessa breytingartillögu sem hv. þingmaður lagði fram, hún er mjög áhugaverð upp á það að gera, miðað við þær umsagnir sem við höfum fengið, að það væri tvímælalaust góð hugmynd að auka aðhald ríkisins með því að skila auknum afgangi. En það er ekki það eina sem væri í raun nauðsynlegt, það væri líka hægt að fara í ýmsar aðrar æfingar hvað það varðar með því að styrkja tekjustofnana o.s.frv. Þetta er alla vega góð viðleitni hvað það varðar.

Eitt sem ég hnaut um varðandi fyrri fjármálastefnu var ákvæði um að öllu óreglulegu einskiptisfjármagni skuli varið til skuldalækkunar. Þá vísa ég í umsögn fjármálaráðs þar sem hvatt er til þess að gera miklu meira af kostnaðar- og ábatagreiningu. Það er mjög auðvelt að sjá ábatann af því að greiða skuldir niður hraðar. En það gætu verið önnur verkefni sem gætu gefið meiri ábata en að greiða niður skuldir. Okkur vantar meira af slíkum gögnum til að vinna með. Því mótmæli ég aðeins nauðsyn þess að öllu óreglulegu einskiptisfjármagni skuli varið til skuldalækkunar. Það gætu verið verkefni sem myndu gefa meiri ábata en skuldalækkun.