fjármálastefna 2018--2022.
Frú forseti. Ég játa að ég er maður skýrra og fortakslausra fullyrðinga, sérstaklega þegar kemur að fjármálum. Fullyrðingin sem hér er sett fram er tiltölulega fortakslaus. Hún kallar ekki á mikla nefndargreiningarvinnu áður en við ákveðum hvort þessi ákvæði þingsályktunar hafi verið uppfyllt. (Gripið fram í.) Já. Ég tek bara dæmi um hvað segir í þeirri tillögu sem lögð er til grundvallar hér frá ríkisstjórninni í sambærilegu atriði varðandi umfang hins opinbera:
„Þróun á umfangi starfsemi hins opinbera út tímabilið verði með þeim hætti að það stuðli að efnahagslegum stöðugleika.“
Hvað þýðir þetta? Hvenær myndi ríkisstjórn einhvern tímann kannast við það að hún væri með ákvörðunum sínum að fara út fyrir mörk efnahagslegs stöðugleika? Það myndi aldrei gerast. Þetta segir þannig ekki neitt. Það er ekki hægt að setja þetta í neitt excel-forrit. Það er ekki hægt að draga ályktanir um afkomu ríkissjóðs út frá þessu. Þarna er þetta bara sett inn til þess að fela betur það sem hefur verið tekið út.