fjármálastefna 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek prýðisræðu, mjög glögg og hrósa jafnframt breytingartillögu hv. þingmanns og hans flokks sem hér er komin fram, vegna þess að líkt og með umsögn fjármálaráðs sem hv. þingmaður vitnaði til þá verður umræðan hnitmiðaðri þegar eitthvað liggur til grundvallar, þó að vissulega geti verið erfitt að rífast um tölur eins og hv. þingmaður benti á.
Hv. þingmaður vísaði jafnframt í umsagnir Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins og sagðist sperra eyrun frekar þegar umsagnir frá þessum aðilum væru annars vegar. Það er hárrétt að þar er aðhaldsstigið gagnrýnt, að það sé ekki nægilegt. Þetta er býsna glöggt í breytingartillögunni að það eigi að greiða skuldir hraðar niður og skila meiri afgangi og afgangurinn á að fara í það. En hvað um aðhaldið þegar kemur að útgjöldunum?(Forseti hringir.) Stefna hæstv. ríkisstjórnar sem liggur fyrir er að treysta félagslegan stöðugleika. Hvar vill hv. þingmaður skera niður?