fjármálastefna 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég fagna því að hv. þingmaður er þegar farinn að vinna að ríkisfjármálaáætlun og útfærslu á því hvar aðhaldið birtist, aukið aðhald í ríkisútgjöldum.
Það er alveg skýrt í stefnu hæstv. ríkisstjórnar sem liggur hér fyrir að það á að treysta félagslegan stöðugleika og fara í brýna innviðauppbyggingu eins og speglaðist vel í kosningabaráttunni. Þetta lýtur kannski að stærri ramma þeirra viðfangsefna heldur en nákvæmri útfærslu í ríkisfjármálaáætlun. En látum gott heita.
Af því að breytingartillagan gengur út á það að greiða skuldir hraðar niður þá er hér mjög athyglisverð umsögn dr. Ólafs Margeirssonar sem ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur kynnt sér, en þetta eru nú meira vangaveltur, hún var svolítið á skjön við aðrar umsagnir. En þar fullyrðir dr. Ólafur Margeirsson að opinberar skuldbindingar ríkissjóðs í íslenskum krónum séu alltaf viðráðanlegar út frá efnahagslegu sjónarmiði og því engin þörf fyrir ríkissjóð á að spara í dag til þess að eiga fyrir opinberum framkvæmdum þegar núverandi hagvaxtarskeiði lýkur. Þetta eru meira vangaveltur en bein spurning um þetta sjónarmið, skuldir ríkissjóðs í íslenskum krónum.