fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Bara rétt til þess að tæpa á þessari umræðu um félagslegan stöðugleika. Ég held eins og ég sagði í ræðu minni að það færi þá best á því, ef menn sannarlega vilja auka útgjöld til þeirra mála, að fjármagna þau með skatttekjum, og reyndar hægt að gera það innan ramma þeirrar fjárlagastefnu sem ég legg fram. Það þarf bara að afla tekna á móti. Þó að það sé auðvelt að rífast um tölur þá held ég stundum að það sé enn þá auðveldara að rífast þegar þær liggja ekki fyrir. Ég vona að ég hafi nú eitthvað hjálpað til.
Varðandi umsögn dr. Ólafs Margeirssonar þá setur þingmaðurinn mig í eilítið erfiða stöðu að taka fyrir einstaka umsagnir hér. Ég þekki ágætlega til hugmynda dr. Ólafs Margeirssonar og hef oftast nær ekki gert þær að mínum, það svarar kannski þeirri spurningu.