148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[18:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa ágætu umræðu. Ég vil fagna því sem hv. þingmaður kom inn á varðandi aðhaldsstigið. Það eru fáir sem hafa ekki talað um aðhaldsstigið í þessari umræðu. Sú umræða kemur víða fyrir í umsögnum vítt og breitt að aðhaldsstigið sé ekki nægjanlegt og það kemur frá þeim helstu aðilum sem eru með hagfræðingana, þeir koma og gera athugasemdir við þessa hluti, aðhaldsstigið sé ekki nægilegt.

Kannski örstutt, fer hratt yfir. Varðandi breytingartillöguna sem lögð er fram sýnist mér að þetta séu 42–43 milljarðar sem er verið að leggja til á fjármálastefnutímanum, með hugarreikningi, og að þetta myndi vera þá sama tala árið 2020 sem hlutfall, 30%, eða undir, en það sem hv. þingmaður leggur fram væri 24% árið 2022, en ríkisstjórnin er að stefna á 25% árið 2022. Það er 1%. Munurinn er sirka 1,5% sýnist mér af landsframleiðslu. Það er allt og sumt. Ég fæ kannski að koma með aðra spurningu á eftir.