fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég tek reyndar fram að talan hjá ríkisstjórninni annars vegar er 25,0% og hins vegar 23,3% í tillögu þeirri sem borin var upp af mér og þingmönnum Viðreisnar, þó skrifum við reyndar í tillögutextanum fyrir neðan 24% einhvern veginn af virðingu við fjölda markaðra tölustafa, ef ég get sagt það svo. Auðvitað má alltaf deila um hvort sé meira og hvort sé minna. Klárlega er ein talan lægri en önnur. Það er klárlega svo að aðhaldsstigið með þessari stefnu er meira.
Fyrirgefðu, nú datt spurning hv. þingmanns úr mér. Hún kemur bara aftur.