fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Maður á að fara varlega þegar maður talar, því að auðvitað leggja menn svolítið misjafnan skilning í þetta með Dubai norðursins. Ég hef séð áætlanir frá Isavia um 20 milljónir farþega, þ.e. tvöföldun frá því sem nú er, innan ekki svo langs tíma og 10 milljónir ferðamanna þar af sem ganga hér í land. Þegar ég horfði á það var ég svo sem að hugsa um Dubai norðursins, þ.e. fjölda sem er margfaldur miðað við stærð samfélagsins og samfélagsþolmörk í landinu. En látum það liggja milli hluta. Það er eflaust rétt hjá hv. þingmanni að við erum komin nálægt þessu. En við erum að horfa til lengri tíma og annarra aðstæðna sem ég held að miklu erfiðara yrði að eiga við en það sem nú er. Ég spurði því í minni stuttu ræðu: Eru 3 til 4 milljónir mörkin sem við erum að leita að, eða eru þau hærri? Ég veit það ekki sjálfur, en mig grunar að 10 milljónir sé örugglega handan markanna.