fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Það er ekki að ófyrirsynju að málefni ferðaþjónustunnar fá sérstaka athygli í umfjöllun fjármálaráðs um fjármálastefnu og í ýmsum af þeim álitum sem fram hafa komið, enda er hér um að ræða atvinnugrein sem hefur á svo undraskömmum tíma orðið burðarás í íslensku atvinnu- og efnahagslífi að maður þekkir naumast dæmi um annað eins, leyfi ég mér að segja. Þess vegna er það afar þýðingarmikið að hér komi fram jafn merkt innlegg eins og raun ber vitni frá hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni sem ég þakka alveg sérstaklega fyrir. Hann gerir að umtalsefni þau hugtök sem hljóta að liggja til grundvallar þegar fjallað er um ferðaþjónustuna sem atvinnugrein. Meðal þeirra grundvallarhugtaka eru þolmörk, sjálfbærni og annað af því tagi.
Þær tölur sem hv. þingmaður hefur nefnt, að stefnt gæti í það innan fárra ára að fjöldi ferðamanna hér á landi yrði á bilinu 3–4 milljónir, miðast við tiltölulega hóflegar forsendur, miðað við þá þróun sem orðið hefur hér. Nú er það svo að vísustu menn telja eftir því sem mér er tjáð að þegar uppgangur í atvinnugrein af þessu tagi hefur náð eins konar jafnvægi þá sé fjölgun kannski í kringum 7% á ári. Það er því ekki annað að sjá en að hér verði mjög umtalsverð fjölgun ferðamanna á komandi árum. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji að við séum í raun og sanni frá sjónarmiði þolmarka og sjálfbærni reiðubúin til að taka við þessum mikla fjölda.