fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Að svo komnu máli eru þessar tölur auðvitað, ég vil nú ekki kalla það ágiskanir, en þá er ég að tala um 3–4 milljónir miðað við 10% meðalvöxt á ári. Ég hef ekkert fyrir mér í þessu annað en þessa talnaleikfimi og svo máta ég það við þann fjölda sem núna er hér, rúmar 2 milljónir, og það sem það hefur allt í för með sér fyrir okkar samfélag og hvernig okkur gengur að ráða við það.
Ég er ekkert viss um að þetta séu endilega einhver endimörk, 3–4 milljónir, það getur vel verið að þau séu töluvert hærri, en það er alveg ljóst að við verðum alltaf að meta hvert við viljum fara í þessum efnum á móti öðru því sem við ætlum að gera svo ég orði það þannig, eins og ég nefndi í minni ræðu, hvort sem það eru nýsköpunarstörf, fiskveiðar, matarframleiðsla, orkuvinnsla, hvaðeina sem þetta samfélag hérna þráir og þarf að vera til staðar til þess að hér sé fjölþætt samfélag, ungt fólk vilji vera hér, menntunarstig sé hátt o.s.frv.
Enn og aftur: Þær skýrslur sem verið er að vinna og sú tölugreining sem fer fram er auðvitað undirstaðan undir því vitræna sem við þurfum á að halda til þess að geta tekið ákvarðanir. Ég tek það mjög skýrt fram að þolmörk og annað slíkt er í sífelldri endurskoðun og aðgangsstýringar eru sífellt í mótun þannig að þetta er ekki eitthvað sem við getum afgreitt í eitt skipti fyrir öll. Þetta er atvinnugrein og verkefni sem við þurfum að glíma við frá ári til árs, opið og gagnsætt ef menn vilja orða það þannig, og með myndi ég segja nokkuð vísindalegri nálgun.