fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er einu sinni þannig að við erum komin á þann stað í okkar hagþróun á Íslandi að ekki er hægt að fjalla um meiri háttar mál eins og framvindu ríkisfjármála öðruvísi en fyrir liggi ítarlegar og greinargóðar spár um einmitt þetta, hver er líkleg þróun í ferðaþjónustunni. Þá munar auðvitað mest um fjölda ferðamanna.
Sú spurning sem ég leyfði mér að varpa fram, ég tel að hún sé mjög gild. Erum við í raun og sanni búin undir það að taka við þeim fjölda sem líklegan má telja á komandi árum frá sjónarmiði þolmarka og sjálfbærni? Í þessari atvinnugrein sýnist þurfa víðtæka stefnumörkun og rannsóknir rétt eins og meginatvinnugreinarnar sem við höfum búið við eins og segjum landbúnaður og sjávarútvegur hafa (Forseti hringir.) notið stuðnings af stefnumótun og víðtækum rannsóknum á þeim sviðum sem þær starfa.