148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[18:58]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að hugsanlega erum við þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar ekki að fullu sammála um allt, en ég held hins vegar að það liggi ekkert svo langt frá okkur þegar kemur að afkomunni sjálfri. Það er kannski spurning um hvernig skuli stefnt að, hvort það sé með tekjum eða með því að vera ekki að eyða jafn miklum peningum. Það má auðvitað ná saman um ýmislegt, eins og hv. þingmaður á að þekkja verandi í ríkisstjórn sem er ansi fjölbreytilega samsett nú um stundir, svo ég haldi því bara fram.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Það er rétt að hún vísar í þá fjármálastefnu sem lá fyrir á seinasta kjörtímabili sem er ekki mjög ólík þeirri sem við höfum nú lagt fram með einni undantekningu. En munurinn á þeirri stefnu, sem þá var samþykkt af bæði mér og hv. þingmanni, og þeirri sem nú er lögð fram er þrenns konar. Í fyrsta lagi er afkoma ríkissjóðs lakari nú og skuldir greiddar hægar niður. Finnst henni það góð hugmynd að gera það með þeim hætti? Í öðru lagi var útgjaldaþak á heildarútgjöldum hins opinbera að mig minnir 41,5% í þeirri stefnu, það er farið. Finnst henni gott að það sé farið? Í þriðja lagi var tekið fram í þeirri stefnu að öll einskiptisútgjöld, óregluleg útgjöld hins opinbera, skuli fara í að greiða niður skuldir. Finnst henni gott að það sé farið út úr fjármálastefnunni?