148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[19:11]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar yfirgripsmiklu ræðu. Ég ætla að leyfa mér að segja að ég tel að sjónarmið hennar í þessum efnum séu afar athyglisverð, ekki síst í ljósi þess að hún býr yfir þeirri sérstöku þekkingu og reynslu að þekkja málin ekki bara frá sjónarhóli alþingismanns heldur líka sem sveitarstjórnarmanns. Þannig stendur á að hin merku lög sem við störfum hér eftir, lög um opinber fjármál, geyma í 11. gr. mjög ítarleg ákvæði um þátt sveitarfélaganna í fjármálabúskap hins opinbera og fjallar um samskipti og samráð ríkis og sveitarfélaga.

Þannig háttar til, herra forseti, að Samband íslenskra sveitarfélaga býr yfir mjög sterkri hagfræðilegri þekkingu um þessar mundir og þess verður áþreifanlega vart í umsögnum sem til að mynda berast fjárlaganefnd frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að þær eru afar vandaðar og greinargóðar og að sama skapi þarflegar og gagnlegar.

Ég leyfi mér að varpa því fram til hv. þingmanns að hún lýsi því kannski með nokkrum orðum hvernig hún telur að þetta samstarf ríkis og sveitarfélaga á þessu mikilvæga sviði sem fjármálin eru hafi í raun og veru heppnast og tekist í ljósi þeirra ákvæða sem lög um opinber fjármál leggja þar til grundvallar.