148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[20:18]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Áður en ég hef mál mitt vil ég segja að ég hefði kosið að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra væri viðstaddur umræðuna þar sem ég hef nú fyrirspurn til hans í lokin. En það er þá hugsanlegt að hv. þm. og formaður fjárlaganefndar Willum Þór Þórsson geti svarað þeim. En vissulega væri æskilegt að fjármálaráðherra væri hér.

Sá sem hér stendur er skrifaður fyrir nefndaráliti 2. minni hluta fjárlaganefndar ásamt hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni og Ólafi Ísleifssyni. Ég ætla ekki að endurtaka það sem fram kemur í nefndaráliti okkar heldur fara aðeins yfir nokkur atriði sem ég vil bæta við. Í nefndaráliti meiri hlutans er fjallað um nauðsyn þess að hefja átak í uppbyggingu og viðhaldi innviða svo sem samgöngukerfis. Undir það skal heils hugar tekið. Við erum að sigla inn í niðursveiflu og sú niðursveifla er vanmetin. Alveg eins og menn vanmátu uppsveifluna. Það ber nú að nýta slakann til að fara í innviðauppbyggingu og ég tek heils hugar undir það. Hins vegar er rétt tímasetning lykilatriði í þeim efnum.

Það er veruleg uppsöfnuð þörf í vegamálum og aðrir innviðir hafa setið á hakanum, eins og við þekkjum. Það er vissulega ábyrg staða í ríkisfjármálunum að greiða niður skuldir. Sá sem hér stendur er talsmaður ráðdeildarsemi í ríkisfjármálum og fjármálum almennt. Að ganga á eignir með því að halda ekki við innviðum er óskynsamlegt, svona svipað eins og að eyða engu í viðhald á eigin húsnæði, sem gerir það að verkum að verðgildi þess minnkar og jafnvel notagildið. Í áliti meiri hlutans er þess jafnframt getið að nauðsynlegt sé að forgangsraða framkvæmdum á kerfisbundinn hátt og nýta ábata og kostnaðargreiningar í því skyni. Í álitinu beinir meiri hlutinn því sérstaklega til stjórnvalda að koma á kerfisbundnari forgangsröðun framkvæmda en verið hefur fram til þessa. Ég tek heils hugar undir það.

En ég vil jafnframt benda á að meiri hluti nefndarinnar hefur fram að þessu ekki sýnt í verki að hann vilji forgangsraða framkvæmdum með þeim hætti sem hér er nefnt. Má í því sambandi sérstaklega nefna breytingartillögur meiri hlutans við síðustu fjárlög og hækkun til vegamála. Þar var settur um það bil 0,5 milljarðar í samgönguverkefni sem ekki var efst á forgangslista Vegagerðarinnar. Forgangsröðun innviðafjármagnsins verður að fara þangað sem þörfin er mest. Það þarf að tryggja og ræða opinskátt.

Í greinargerð 2. minni hluta er fjallað um þá annmarka í fjármálastefnunni að ekki skuli teiknaðar upp mögulegar sviðsmyndir af sveiflum á gengi krónunnar. Það er mjög mikilvægt að sviðsmyndir séu gerðar í báðar áttir. Það hefur verið rætt í þessari umræðu. Samtök fjármálafyrirtækja telja í umsögn sinni að mjúk lending hagkerfisins eftir langt hagvaxtarskeið sé ólíklegasta niðurstaðan. Fjármálaráð gagnrýnir jafnframt að gert sé ráð fyrir mjúkri lendingu í efnahagslífinu. Það er fyrst og fremst ferðamannastraumurinn sem hefur gert þessa uppsveiflu lengri. Ef ferðamönnum heldur áfram að fjölga frestast niðursveiflan. Það verður hins vegar að teljast ólíklegt. Hin hefðbundna leið er sú að krónan fellur mikið.

Í umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja kemur fram að gengið geti gefið eftir um allt að 10–30% og að kaupmáttarlækkun muni fylgja í kjölfarið. Hafa ber í huga í því sambandi huglæga þætti sem einnig munu hafa áhrif, eins og væntanlegar kjaraviðræður.

Ég vil aðeins gera kjaraviðræður að umtalsefni. Ég tel að þeim hafi ekki verið gefinn nægilegur gaumur í fjármálastefnunni og umræðunni um hana hér. Fjármálastefnan gerir ráð fyrir stöðugleika. Hins vegar eru teikn á lofti um að óstöðugleiki sé fram undan vegna þeirra sviptinga sem átt hafa sér stað innan verkalýðshreyfingarinnar að undanförnu. Það er breytt staða innan hreyfingarinnar. Komið hafa fram skýr skilaboð um nýjar áherslur og stefnu. Þær lúta ekki síst að kröfum um miklar kerfisbreytingar eins og á fjármálamarkaðnum. Í samtölum sem ég átti við formenn tveggja stórra verkalýðsfélaga í þessari viku kom skýrt fram að það samtal sem stjórnvöld hafa átt við verkalýðshreyfinguna um réttindi launafólks í atvinnuleysi og fæðingarorlofi væru ekki efst á kröfugerðarlista hins almenna launamanns. Krafan er um launahækkanir í krónum talið en ekki prósentum, ásamt kröfunni um lægri vexti. Menn hafi verið tilbúnir að fórna sér fyrir vaxtakröfu lífeyrissjóðanna. En svo væri ekki lengur. Vextir og verðtrygging eru stóra málið hjá vinnandi fólki í dag.

Nýir foringjar eru í verkalýðshreyfingunni og nýjar kynslóðir taka við. Mér er kunnugt um að nú þegar sé farið að teikna upp aðgerðir. Menn gera sér ekki grein fyrir því hvað gæti gerst í þessum efnum. Lágmarkstaxtinn í dag er 257.000 kr. á mánuði. Það eru skammarlega lág laun. 25% allra launamanna eru með undir 400.000 kr. á mánuði. Staðan er gerbreytt innan verkalýðshreyfingarinnar og hún er róttækari en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Það sjáum við greinilega á því sem gerst hefur í VR og Eflingu, svo dæmi séu tekin. Þessi tvö félög eru með meiri hluta í ASÍ. Því er augljóst að það mun draga til tíðinda í forystumálum ASÍ í haust.

Ríkisstjórnin getur ekki horft fram hjá þessum miklu breytingum sem við höfum orðið vitni að innan verkalýðshreyfingarinnar. Það lýtur að því sem við höfum rætt hér um, þ.e. grunngildunum. Ófyrirséðar afleiðingar og áhrif á þróun opinberra fjármála. Það tengist og hefði verið mjög mikilvægt að horfa til þess í þessari stefnu. Orðið hefur gerbreyting á verkalýðshreyfingunni sem við höfum ekki séð í áratugi. Það verður að taka tillit til þess í fjármálastefnunni. Það verður að greina stöðuna og þau áhrif sem hún mun hafa.

Ég vil aðeins víkja aftur að sveiflum í gengi krónunnar. Í mars 2008 gaf krónan mikið eftir á aðeins nokkrum dögum. En ferðaþjónustan hjálpaði okkur einnig mikið að ná okkur á strik eftir hrun, eins og allir vita. Styrking krónunnar leiðir af því. En styrkingin hefur áhrif á atvinnumynstrið í landinu og skapar t.d. erfiðleika fyrir útflutningsgreinarnar. Hátt gengi styrkir hins vegar kaupmátt. Stjórnvöld geta ekki leitt hjá sér þau efnahagslegu áhrif og vaxtarverki sem fylgja þessu. Hagstofan spáir ekki stöðugu gengi. Við erum lítið hagkerfi og sveiflur hafa áhrif. Við verðum að búa okkur undir sveiflur en getum skiljanlega ekki spáð fyrir um alla hluti, eins og náttúruhamfarir. Það þarf að leggja meira í áhættugreiningar í fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar eins og komið hefur fram hér. Hvaða áhrif það hefur ef hagvöxtur verður minni. Annar minni hluti fjárlaganefndar leggur ríka áherslu á það í nefndaráliti sínu.

Varðandi spár fram í tímann er ekki langt síðan Hagstofan lækkaði spá sína. Það má því einnig velta því fyrir sér hvort fimm ára áætlun sé ekki of löng. Það er ekki algengt að þær séu svona langar.

Tekið skal undir það með Samtökum fjármálafyrirtækja að fjármálastefnan verði að vera tæki þar sem við getum áttað okkur á því sem gæti gerst í hagkerfinu. Fjármálastefna meiri hlutans leiðir hins vegar ekki í ljós hvernig hugsa ber helstu áhættuþættina í ríkisrekstrinum. Stefnunni verða að fylgja fráviksspár. Hér hafa held ég flestallir lagt áherslu á það. Fráviksspár þar sem tekið er á þeim vandamála- og óvissuþáttum sem ég nefndi hér áðan.

Rétt er í lokin að minnast á umsögn Seðlabankans. Bankinn hefur áhyggjur af aðhaldsleysi í ríkisfjármálum og að slakað sé á aðhaldinu; boðuð aukin útgjöld og skattalækkanir í því árferði sem við búum við í dag er afturför að mati Seðlabankans, hagstjórnarlega séð.

Ég held að því sé við hæfi að ég spyrji formann fjárlaganefndar og hv. þm. Willum Þór Þórsson hvort hann telji að boðaðar skattalækkanir Sjálfstæðisflokksins, sem komu m.a. fram á nýafstöðnu flokksþingi þeirra, séu skynsamlegar hagstjórnarlega séð í því árferði sem við búum við í dag. Það væri einnig fróðlegt að fá að vita hvort þessar boðuðu skattalækkanir innan ríkisstjórnarinnar séu gerðar með samþykki Framsóknarflokks og Vinstri grænna.