148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[20:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessa yfirferð. Eins og ég nefndi áðan átti ég ágætt samtal við tvo verkalýðsforingja einna stærstu verkalýðshreyfinganna. Þar komu skýrt fram nýjar áherslur, þær róttæku breytingar sem við höfum heyrt af og séð. Maður upplifði þær greinilega þar. Það getur farið svo að kröfugerðin verði með þeim hætti þegar að því kemur að hér geti skapast óstöðugleiki. Vissulega skil ég þessar hugmyndir og það sem fram kom hjá hæstv. ráðherra varðandi það að eiga innlegg í þær kjaraviðræður. En það kom skýrt fram að helsta áherslumálið í þeim efnum hjá verkalýðsfélögum væru einmitt hækkanir í krónum talið, launaliðurinn, og vaxta- og verðtryggingarþátturinn.

Þannig að ég er ekki viss um að skattalækkanir þær sem fjármálaráðherra boðar ráði úrslitum hvað það varðar. En ég vil nota tækifærið í því sambandi og spyrja þá hæstv. ráðherra hvernig hann telji að þær fyrirhuguðu skattalækkanir sem hann nefnir samræmist grunngildum um varfærni og stöðugleika sem fram koma í lögunum um opinber fjármál og eru þær forsendur sem stjórnvöld eiga að rökstyðja fjármálastefnuna með.