fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Ég hef nú sagt hér fyrr að ég er talsmaður ráðdeildarsemi og skynsamlegra lausna í ríkisrekstri. Þess vegna er mjög mikilvægt að farið sé varlega því að það eru teikn á lofti um óvissuþætti. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir að einnig hafi komið fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem minnst hefur verið nokkrum sinnum á í þessum sal í dag, að hugmyndir Sjálfstæðismanna gangi út á að setja um það bil 150 milljarða í innviðauppbyggingu. Þá er spurningin hvort það sé skynsamlegt í ljósi þess að einnig eigi að huga að því að lækka skatta sé ekki í hrópandi ósamræmi við það sem Seðlabankinn hefur sagt og lagt til, og telur í raun og veru vera (Forseti hringir.) afturför hagstjórnarlega séð.