148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[20:38]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir innleggið í þessa umræðu um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem gildir fyrir árin 2018–2022. Hv. þingmaður orðaði það einhvern veginn þannig að við værum að fara í niðursveiflu, hafi ég tekið rétt eftir. Ég spyr hann að þessu: Sér þingmaðurinn einhver sérstök merki um veikingu krónunnar sem hann hefur í augsýn í því sambandi þannig að hún gæti gefið eftir um 10–30% eins og ég held að hann hafi orðað það í sinni ræðu?

Annað sem ég vildi spyrja hann um varðar þær áætlanir sem eru að koma, þ.e. fjármálaáætlun og síðan í haust samgönguáætlun sem byggist í grunninn á þessari stefnu. Hann talar um að það þurfi að forgangsraða framkvæmdum. Við höfum orðið áþreifanlega vör við það, einmitt á þessu ári, að forgangsröðun framkvæmda í vegamál samkvæmt samgönguáætlun er algjörlega marklaus. Þetta er marklaust plagg sem heitir samgönguáætlun. Hún er algjörlega vanfjármögnuð og ég veit ekki til hvers menn setja fram svona áætlanir ef það á ekkert að fara eftir þeim.

Ég myndi vilja fá álit þingmannsins á þessu. Til hvers erum við að leggja fram þessar áætlanir ef á ekkert að fara eftir þeim?