148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[20:40]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Aðeins varðandi gengi krónunnar. Í umsögn frá Samtökum fjármálafyrirtækja kom fram að þetta væri sviðsmynd sem gæti gerst, að gengið félli mjög skarpt á mjög skömmum tíma. Eins og ég nefndi áðan gerðist það í mars 2008. Þá var ástandið með þeim hætti að krónan féll mikið á aðeins nokkrum dögum. Þessir sérfræðingar eru fróðari um þessi mál en ég en þetta kom fram í fleiri álitum en einu.

Hvaða teikn eru á lofti um að þetta gæti gerst núna? Jú, ég held að við verðum aðeins að horfa til ferðaþjónustunnar í þeim efnum. Hún hefur náttúrlega drifið þessa hagsveiflu og valdið því að gengið hefur styrkst verulega. Það er vissulega talað um ferðaþjónustuna í áliti meiri hlutans en hins vegar er nauðsynlegt að fá nánari upplýsingar um þessa áhættuþætti. Þeir eru ekki teknir fram sem voru lagðir til grundvallar þeirri spá sem var gerð. Það er t.d. ekki nægilegt að horfa einungis til þessarar kerfislægu áhættu, heldur er félagslega áhættan mjög mikilvæg. Félagsleg þolmörk þessarar greinar eru líka stór áhættuþáttur. Við verðum að horfa til orðspors greinarinnar meðal Íslendinga og þeirrar staðreyndar að þol heimamanna gagnvart ferðamönnum fer minnkandi. Við verðum að horfa til álags á náttúruna sem er víða komin að þolmörkum og einnig til þeirrar ólöglegu starfsemi sem er innan greinarinnar og fer vaxandi. Það kom fram í umsögn frá ferðaþjónustunni.

Ráðuneytið horfir (Forseti hringir.) í fráviksspánni sérstaklega til vaxtar greinarinnar í samanburði við alþjóðlega þróun. Það er svo sem ágætt svo langt sem það nær en þetta er mikilvægur þáttur. Ég verð að koma að síðari spurningunni í seinna andsvari.