fjármálastefna 2018--2022.
Virðulegi forseti. Við tókum eftir því áðan í andsvari hæstv. fjármálaráðherra að hann talaði um og hafði áhyggjur af að vaxtarhraði útgjalda væri of mikill í ríkisbúskapnum. Því spyr ég um álit þingmannsins. Hvernig telur þú að ríkisstjórnin geti nálgast það að klára sig af t.d. vegakerfinu sem ég hef sérstakar áhyggjur af? Eins og við vitum öll eru vegirnir í landinu, bæði á höfuðborgarsvæðinu, frá því og úti um allt land, að molna niður. Ég spyr þingmanninn: Hvað er til ráða? Hefur hann einhverjar hugmyndir fyrir ríkisstjórnina í þessu stóra vandamáli? Hvernig á að fjármagna uppbyggingu (Forseti hringir.) vegakerfisins?
(Forseti (BN): Forseti biður hv. þingmann að ávarpa aðra þingmenn í samræmi við þingskapalög.)