fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Forgangsröðunin í samgöngumálunum er afar mikilvæg. Ég hef efasemdir um að meiri hlutinn muni forgangsraða með þeim hætti sem á að gera. Það kom berlega í ljós í fjárlagavinnunni fyrir jól að þegar aukafjárveitingar komu í þennan málaflokk var ekki forgangsraðað. Ég vil meina að frekar hafi verið farið eftir því hversu ákveðnir tilteknir þingmenn voru í því að í þeirra kjördæmi yrði ákveðinn vegarkafli lagaður o.s.frv.
Þetta er afar mikilvægt. Í því sambandi á t.d. að horfa á umferðarþunga. Eigum við að setja 500 milljónir í vegarkafla þar sem 100 bílar keyra á sólarhring eða 500 milljónir í vegarkafla þar sem 10.000 bílar keyra á sólarhring? Þetta er það sem skiptir öllu máli.
Varðandi það hvernig á að gera þetta þarf þetta náttúrlega að fara inn í (Forseti hringir.) ríkisfjármálaáætlun og svo í samgönguáætlun.