148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[20:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir prýðisræðu og vil nota tækifærið, þar sem við erum komin á seinni stig í þessari umræðu, til að þakka jafnframt góða samvinnu í hv. fjárlaganefnd, þótt við séum ekki á sama áliti þar. Ég fór hér með framsögu meiri hluta hv. fjárlaganefndar.

Það er svolítið merkilegt að standa hér því að hv. þingmaður varpaði til mín spurningu í ræðu sinni. Venjan er sú að sá sem kemur í andsvar spyrji spurninga. Ég ætla nú samt sem áður að reyna að svara ágætisspurningu þar sem hv. þingmaður kom inn á skatta. Vissulega eru þeir hluti af stefnumörkun. Hv. þingmaður spurði um fyrirhugaðar skattalækkanir. Það vill svo til að það er hluti af þeirri stefnu sem við ræðum hér og tengist kjarasamningum. Á blaðsíðu 10 er fjallað ágætlega um tekju- og skattastefnu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Umfang og tímasetningar aðgerða í skattamálum verða að ráðast af ýmsum þáttum, svo sem framvindu kjarasamninga á vinnumarkaði …“

Eins og hv. þingmaður kom mjög vel inn á í ræðu sinni er það mjög mikilvægt þegar við horfum á framvinduna í efnahagsmálum. Ég er fylgjandi því að lækka skatta í neðra þrepi til að koma til móts við þá sem lægri tekjur hafa. En ég varpa spurningunni þá um leið til baka til hv. þingmanns: Eigum ekki að reyna að bæta kjör þeirra sem lægri hafa launin?