fjármálastefna 2018--2022.
Herra forseti. Ég tek heils hugar undir að það er afar brýnt að bæta kjör hins almenna launamanns í landinu. Það kom skýrt fram í viðræðum mínum við foringja verkalýðshreyfingarinnar í þessari viku og var mjög fróðlegt að heyra það sem þeir lögðu fram í þeim efnum. En nú hefur líka komið fram að meiri hlutinn hefur í hyggju að fara í mikla innviðauppbyggingu sem er vissulega nauðsynleg. Þá er spurningin þessi: Erum við ekki að spenna bogann of hátt ef við ætlum að fara í mikla innspýtingu í uppbyggingu innviða og á sama tíma að lækka skatta? Það þarf að haldast allt í hendur. Það þarf að gera þetta mjög varlega. Því að ef þessir hlutir eru ekki gerðir varlega missum við þá úr böndunum. Það græðir enginn á því. Kaupmáttarrýrnun verður, verðbólga fer upp, verðtrygging og lán okkar hækka og svo framvegis. Það er mjög mikilvægt í mínum huga að þetta sé gert af varfærni. Þess vegna höfum við þessi grunngildi í stefnunni, til þess að vera leiðarvísir í þeim efnum. Ég vil bara hvetja meiri hlutann til þess að nálgast þessa mikilvægu þætti með það í huga að við förum ekki fram úr okkur varðandi stöðugleikann.