148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fjármálastefna 2018--2022.

2. mál
[21:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni ræðu hans. Hv. þingmaður var í sinni seinni ræðu og hafði framsögu um minnihlutaálit, ræddi hagspá og þá gagnrýni sem hefur komið fram á hagspá. Við tökum undir það í meiri hluta. Þetta kom fram í fjölmörgum umsögnum en mjög uppbyggileg gagnrýni, met ég. Hann benti á skort á aðhaldi, að aðhaldsstigið væri ekki nægjanlegt. Það hefur allt komið mjög vel fram og hv. þingmaður dró það vel saman.

Eins og fram hefur komið og kom fram í fyrra andsvari við hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur er hv. þingmaður maður forms og gilda og þá vil ég spyrja hv. þingmann út í tvennt. Í fyrsta lagi horfum við eins og lög um opinber fjármál gera ráð fyrir á 6. og 7. gr. laga um opinber fjármál, sú 6. snýr að grunngildum og sú 7. að fjármálareglunum, í stefnumörkunarferlinu öllu, bæði í stefnunni þar sem markmiðin eru sett, og svo í ríkisfjármálaáætlun sem við fjöllum um fljótlega. Hv. þingmaður sagði að það væri auðvelt að færa rök fyrir hverju og einu gildi og ég vil spyrja hvort það sé ekki sterkara samhengi á milli tölulegra gilda í einfaldleika stefnunnar og grunngilda þannig að í útfærslu ríkisfjármálaáætlunar sé mun meiri ástæða til þess (Forseti hringir.) færa ítarlegri rökstuðning fyrir gildunum en í stefnunni, sem er þó gert þar almennt.