Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa þrjú bréf frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 385, um ráðherrabíla og bílstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni, þskj. 431, um starfsmenn stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni, og þskj. 367, um hleðslustöðvar fyrir rafbíla, frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
Einnig hefur borist bréf frá félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 319, um greiðslur til foreldra vegna andvanafæðingar og fósturláts, frá Andrési Inga Jónssyni.