148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Þinghaldið í gær veitti mikilvæga innsýn í samstarf flokkanna þriggja sem standa að ríkisstjórninni. Tvö atriði ber í mínum huga hæst í því sambandi.

Í fyrirspurnatíma spurði ég hæstv. forsætisráðherra hvort mætti treysta því að ríkisstjórn hennar myndi verja óbyggð víðerni á hálendi Vestfjarða. Það kom ekki já við þessari spurningu, herra forseti. Samkvæmt þessu verður þarna sleppt lausum jarðýtum og beltagröfum í boði VG sem munu stórspilla vötnum og fossum og öðrum náttúruperlum samkvæmt áliti Umhverfisstofnunar. Þetta er gjaldið sem VG greiðir fyrir þátttöku í ríkisstjórninni.

Á hinn bóginn, herra forseti, máttu Sjálfstæðismenn sitja undir því að samstarfsflokkar þeirra virtu sjónarmið þeirra vettergis í máli um kosningaaldurinn sem þeim er bersýnilega umhugað um. Gengu æðstu forystumenn samstarfsflokka Sjálfstæðisflokksins fast fram; formaður forystuflokksins, hæstv. forsætisráðherra, og varaformaður hins flokksins, hæstv. menntamálaráðherra, auk annars tignarfólks úr þessum flokkum.

Ýmsir hljóta að vera hugsi eftir þessa viðburði gærdagsins. Í hugann kemur herra forseti, hið fornkveðna: Alltaf má fá annað skip og annað föruneyti.