148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

störf þingsins.

[10:36]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Fréttaþátturinn Kveikur kveikti umræðuna um fjárhættuspil og ég ætla að ræða það hér. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur sagt að endurskoða þurfi fyrirkomulagið og til athugunar sé að takmarka fjárhæðir, spilatíma og auka eftirlit.

Ég fagna því og hef áður tjáð mig um þessi mál hér í þessum ræðustól og lagt fram frumvarp sem tengist þessu. Nú er það svo að um 900 kassar eru í gangi og veltan hleypur á milljörðum. Ísland er eina landið í heiminum þar sem kassar eru utan spilavíta, engin takmörk sett, ekkert eftirlit, notkun reiðufjár víðast hætt. Þetta kemur m.a. fram í því frumvarpi sem ég hef lagt fram þar sem eru lögð til heildarlög þar sem slíkri starfsemi er komið undir eitt þak með sérstöku leyfi frá ráðherra og undir skipulögðu eftirliti. Það má vel hugsa sér að slíkum kössum, líkt og annars staðar í heiminum, verði einmitt safnað á einn stað og eftirlit aukið með þeim hætti og felld um leið niður sérlög þessa efnis.

Þess utan er gert ráð fyrir að spilatekjur standi undir forvarnasjóði sem ekki er til í dag sem kemur spilafíklum til aðstoðar. Slíkur sjóður er nauðsynlegur. Það er tryggilega gengið frá því í frumvarpinu um fyrirkomulag þessa efnis þannig að fíklar geti látið loka á sig, þeim leiðbeint um aðstoð og til þess að komast inn á slíka staði þurfi að sýna skilríki og aldurstakmarkið verði 21 ár. Það er fyrst og fremst forvarnamál, þetta frumvarp. Þess utan breytir þetta því að koma starfsemi upp á yfirborðið sem eru ólöglegir spilaklúbbar sem þrífast í dag þar sem er spilað fyrir mun meiri fjárhæðir og undir engu eftirliti og þar sem réttarvernd þeirra sem spila er engin. (Forseti hringir.)

Það er kominn tími til, virðulegi forseti, að taka á þessum málum og horfa til forvarnaþáttarins og setja heildarlög um málið.