störf þingsins.
Virðulegur forseti. Strákarnir okkar. Allir vita um hverja er verið að tala þegar þetta er sagt. Strákarnir okkar. (Gripið fram í: Sjálfstæðisflokkinn.) En ég ætla ekki að tala um fótbolta- eða handboltastjörnurnar okkar núna, heldur ætla ég að tala um aðra stráka. Allt aðra stráka.
Margir hafa veitt því athygli að drengir eiga erfitt uppdráttar í skólakerfinu. Þaðan kemur stór hluti pilta ólæs, þrefalt fleiri drengir en stúlkur fara ólæsir út úr því. Fleiri drengir ljúka ekki framhaldsskólanámi, færri fara í háskóla samanborið við stúlkur. 12% 5–9 ára drengja eru á einhvers konar hegðunarlyfjum. Helmingi fleiri drengir en stúlkur eru á slíkum lyfjum á þessum aldri. Þeir finna sig ekki. Við tekur alls kyns hegðun, áhættuhegðun, afbrot, vímuefni, þunglyndi, aðgerðaleysi, atvinnuleysi og alls kyns óhamingja. Fleiri ungir menn falla fyrir eigin hendi en ungar konur og er sjálfsmorðstíðni ungra manna verulegt áhyggjuefni. Það er hæst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Hvað er til ráða? Þurfum við ekki að fara að taka eitthvað til bragðs?
Ég vil ræða þennan vanda í svolitlu samhengi við þá stórkostlegu umræðubylgju sem hér reis, er enn í hávegum og er kennd við #metoo þar sem kastljósinu var beint að því sem allt of margar konur mega þola. Ég legg til að við beinum kastljósinu einnig að ungum mönnum. Ræðum málið. Finnum úrræði. Hér þarf stórátak.
Styðjum ekki bara „strákana okkar“ heldur líka aðra stráka, stráka í vanda.