störf þingsins.
Herra forseti. Það er nauðsynlegt að minnast úr þessum ræðustól árásarinnar á Bretland þar sem taugaeitri var beitt á feðgin í bænum Salisbury í Bretlandi. Bretar, Frakkar, Bandaríkjamenn og Þjóðverjar segja í sameiginlegri yfirlýsingu að Rússar beri ábyrgð á þeirri svívirðilegu árás. Framkvæmdastjóri NATO hefur tekið í sama streng. Notkun hvaða ríkis sem er á vopni sem þessu er skýrt brot á alþjóðalögum og samningum um bann við efnavopnum. Mál þetta er eitt alvarlegasta sem komið hefur upp í alþjóðasamskiptum í Evrópu síðan í síðari heimsstyrjöldinni. Svo virðist sem málið haldi áfram að versna. Í gær líkti utanríkisráðherra Breta Pútín, forseta Rússlands, við Adolf Hitler og sagði að Pútín muni halda HM í Rússlandi í sumar eins og Hitler notaði Ólympíuleikana 1936. Forsætisráðherra Bretlands sagði að málið væri hluti af mynstri rússneskrar íhlutunar gegn Evrópu.
Herra forseti. Við verðum að taka framferði Rússa í Evrópu alvarlega. Bandaríkjaþing gaf út í janúar vandaða skýrslu sem þeir kalla Árás Rússa á lýðræðið í Rússlandi og Evrópu. Þar kemur fram að markmið Rússa sé að grafa undan NATO. Mikilvægi NATO hefur aukist til muna undanfarin misseri. Öll aðildarríkin hafa aukið starfsemi sína innan bandalagsins. Ísland verður að fylgjast vel með því sem þar fer fram.
Það er aðeins ein stofnun sem ekki hefur séð alvöru málsins og sem ekki hefur fjölgað sínum fulltrúum á vettvangi NATO, það er Alþingi. Í Íslandsdeild NATO sitja einungis þrír þingmenn, þar af aðeins einn frá stjórnarandstöðunni. Á sama tíma sitja sjö þingmenn í Norðurlandaráði, sex þingmenn í Vestnorræna ráðinu og fimm í EFTA og EES. Því verður að breyta. Ríkar ástæður kalla á það. Fjölga þarf í Íslandsdeild NATO-þingsins.