148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

störf þingsins.

[10:58]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Fréttirnar um Cambridge Analytica og sambærilegar stofnanir hlýtur að vekja okkur til umhugsunar um málefni sem hefur upp á síðkastið verið áhyggjuefni margra sem eru svokallaðar falsfréttir. Hver einasti stjórnmálamaður sem telur sig hafa eitthvað við fjölmiðla að athuga hefur auðvitað það við fréttir að athuga hvort þær séu sannar eða ekki. Við búum núna á tímum þar sem upplýsingatæknibyltingin hefur gert okkur kleift að gera ofboðslega marga hluti, bæði jákvæða og neikvæða. Svokallaðar falsfréttir, hreinn uppspuni settur í fréttagervi beinlínis til þess að móta skoðanir, eru kannski ekki í sjálfu sér nýtt fyrirbæri. En skalinn er nýr og það hversu erfitt það getur verið fyrir stóran hóp fólks að þekkja muninn á því sem er satt og ósatt. Það er nýtt hversu erfitt það getur verið.

Nú er mannkyn ekki sérstaklega glöggt í því að þekkja muninn á sönnu og ósönnu eins og sagan sýnir og sér í lagi hin ýmsu trúarbrögð heimsins, leyfi ég mér að segja. Til þess að nýta þessa upplýsingatæknibyltingu sem við erum enn þá að ganga í gegnum þá skiptir ekki bara máli að yfirvöld séu með einhverjar hugmyndir um það hvernig þau geti stöðvað falsfréttir eða haft einhvern hemil á vitleysunni sem fær að flakka á internetinu góða eða í fjölmiðlum almennt. Það skiptir máli að almenningi sjálfum sé ekki einfaldlega sama um það hvað sé satt og hvað ekki. Það skiptir í grundvallaratriðum máli.

Það er ótrúlegt ef maður lítur yfir söguna hversu litlu máli þetta virðist hafa skipt mannfólk almennt. Við þurfum ekki bara pólitísk viðbrögð við hættunum sem felast í upplýsingatæknibyltingunni. Við þurfum líka menningarleg viðbrögð. Okkur má ekki vera sama. Við verðum að vilja trúa því sem er satt og við verðum að vilja trúa því ekki sem er ósatt.