148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

störf þingsins.

[11:03]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Í síðustu viku hafði ég ásamt nokkrum öðrum þingmönnum tækifæri til að sækja kvennaþing Sameinuðu þjóðanna. Af því tilefni langar mig að segja ykkur frá konu sem ég hitti þar og heitir Grizelda Grootboom. Grizelda er fórnarlamb mansals en tókst með einhverjum hætti að koma sér út úr þeirri hörmulegu stöðu. Á kvennaþinginu flutti Grizelda sögu sína, hún sagði frá skelfilegu ofbeldi sem hún var beitt, svo skelfilegu að eftir að frásögn hennar lauk voru þeir 500 aðilar sem voru í salnum allir í tárum, undirritaður þar með talinn.

Hví er ég að segja frá þessari ágætu konu? Þannig er að lögreglan á Íslandi, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, hefur áhyggjur af því að mansal og vændi sé að stóraukast á höfuðborgarsvæðinu og raunar vitum við að þetta er að allnokkru leyti rétt hjá lögreglunni. Það geta verið einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel víðar á landinu, í flestum tilfellum konur, sem búa við sömu skelfilegu stöðu og Grizelda; beittar ofbeldi á hverjum einasta degi og sendar á milli landa í gróðaskyni fyrir þá sem, við skulum segja misnota þær.

Þetta vandamál er samfélagslegt vandamál okkar allra. Það er skylda allra hér, allra Íslendinga, allra þingmanna á Alþingi Íslendinga, að taka á þessu máli, skoða það af alvöru og gera það í málinu sem við getum gert til þess að hindra að konur (Forseti hringir.) í sömu stöðu þurfi að búa við sama ofbeldi og þessi góða kona. Ég skora á þingmenn að taka vel á í þessum málum.