148. löggjafarþing — 44. fundur,  23. mars 2018.

störf þingsins.

[11:08]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Áður en menn fá orðið um fundarstjórn forseta vill forseti upplýsa, í framhaldi af orðum hv. þm. Jóns Gunnarssonar, að forseti hyggst freista þess að setja nýjan fund með nýrri dagskrá síðar í dag ef vel gengur með þau dagskrármál sem nú liggja fyrir og taka þá einmitt á dagskrá mál sem ekki náðu inn á dagskrá dagsins í dag, mál sem ekki voru tilbúin til þess að ganga inn á dagskrána eins og þau stóðu í bókunarkerfum þingsins undir miðnætti í gær. Þetta eru áformin.