orð þingmanns í störfum þingsins og þingmannamál.
Herra forseti. Mér finnst þetta áhugaverð tillaga hjá hv. þm. Pawel Bartoszek. Ég geri hins vegar ráð fyrir því, án þess að ég vilji tala fyrir munn forseta, að afstaða hans til þess að taka fyrir mál hv. þm. Jóns Gunnarssonar o.fl. um fulltrúa í sveitarstjórnum tengist því að hér hefur síðustu daga verið rætt nokkuð um annað mál sem tengist sveitarstjórnarkosningum með einum eða öðrum hætti. Það er ákveðið samræmi í því að þau mál sem að því lúta séu tekin fyrir á sama tíma, sérstaklega þegar um er að ræða að tíminn fram að sveitarstjórnarkosningum er afskaplega skammur eins og menn þekkja og ef ég man rétt hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga í næstu viku.
Það gefur ákveðið tilefni til að gera greinarmun (Forseti hringir.) á þessum tveimur málum, sveitarstjórnarmálunum og því máli sem hann nefnir varðandi afnám einkaréttar ríkisins á sölu áfengis, sem ég þó styð eindregið.